Hljómahöll
Vantar þig sal fyrir þinn viðburð?
Um okkur
Í Hljómahöll er fullkomin aðstaða fyrir viðburðahald af öllum toga. Hægt er að leigja sali sem henta undir árshátíðir, brúðkaup, tónleika o.s.frv. Salirnir okkar eru Stapi og Berg. Í Hljómahöll er einnig veisluþjónusta sem leggur mikið upp úr faglegri og persónulegri þjónustu.
Þjónusta
- Berg, Salurinn Berg er nefndur í höfuðið á Hólmsbergi í Keflavík sem í daglegu tali er nefnt „Bergið“. Berg er kjörinn fyrir tónleika, fundi og ráðstefnur. Berg býr yfir fullkomnu og öflugu hljóðkerfi, skjávarpa og sýningartjaldi. Í salnum eru 127 sæti. Stólunum er raðað á bekki í sjö stighækkandi raðir. Stólarnir eru einstaklega þægilegir en þeir heita Magni og eru hannaðir af Valdimar Harðarsyni arkitekti. Hámarksfjöldi gesta: - Sætafjöldi: 127 sæti Tæknilegar upplýsingar: - Stærð salar: 9,3m x 16m - Lofthæð: 6m - Stærð sviðs: 9,3m (breidd) x 5m (dýpt) - Skjávarpi: NEC PA703UL 7000 Lm - Sýningartjald: 5 x 5 metrar - Hljóðkerfi: JBL VRX900 Series
- Stapi, Hið sögufræga félagsheimili Stapi er stærsti salurinn í Hljómahöll og býður upp á fjölbreytta möguleika til viðburðahalds. Ef salurinn er notaður fyrir borðhald, þá getur hann tekið allt að 400 manns, og er þá einnig framlengdur yfir í Merkines-salinn til að auka plássið. Stapi er því tilvalinn fyrir stórar samkomur, hvort sem það eru fundir, ráðstefnur, tónleikar, árshátíðir eða veislur, þar sem boðið er upp á sveigjanlega möguleika og góðan aðbúnað fyrir gesti. **Hámarksfjöldi gesta: **- Hringborð (hámark 180 manns) - Langborð (hámark 400 manns) **Tæknilegar upplýsingar: **- Hljóðkerfi: L'Acoustics KIVA - Myndvarpi: NEC PX803UL 8000lm - Sýningartjald: 8m (breidd) x 6m (hæð) - Stærð sviðs: 12m (breidd) x 8m (dýpt) - Lofthæð í sal: 6m - Lofthæð á sviði: 5m
Hafa samband
Reykjanesbær
Senda fyrirspurn
Skoða á ARVO
Knúið af ARVO